mánudagur, júlí 31, 2006

Rúmur sólarhringur í brottför og anna búin að verða sér úti um bloggsíðu, ótrúlegt. Spennandi að sjá hvort takast muni að brúka miðilinn meðan á ferðalaginu stendur...
Enn sem komið er er planið mjög svo götótt þar sem meiningin er að spila tetta frekar mikið eftir eyranu... erum með bókað hótel í Singapore fyrstu 2 næturnar þ.e.a.s. 2. til 4. ágúst og innanlandsflug frá Johor Bahru í Malasíu til Borneo þann 5. ásamt 2 nóttum á hosteli í Kota Kinabalu, höfuðstað Borneo. Flug til baka til Malasíu 18. ágúst og flug heim frá Singapore 27. ágúst. Á Borneo er ætlunin að stunda fjallaklifur, skoða regnskóga og þjóðgarða sem þekktir eru fyrir einstæða náttúru og dýralíf og læra köfun ef heilsa og tilhneiging til innilokunarkenndar leyfir. Og ef ég fæ að ráða verður endað á nokkura daga stoppi í Kuala Lumpur og m.a. verslað...;)
Á morgun er pökkunardagurinn mikli, þess má geta að pökkun fyrir þessa ferð er persónuleg áskorun þar sem min hefur aldrei áður farið í ekta bakpokaferðalag þar sem hvert gramm af farangri telur...oftar en ekki hefur prinsippið verið akkúrat öfugt, þ.e.a.s. því meira því betra til þess að lenda nú ekki í því að langa allt í einu þvílíkt að fara út í bol sem var skilinn eftir heima... En núna er það sem sagt þannig að líklega verð ég að láta duga einar buxur og eitt pils og kannski 5 boli! Fyrir 4 vikur...ja hérna. Eins gott að gleyma ekki þvottaefninu heima. Það sem er fyrirferðamest í farangrinum er hins vegar ferðaapótekið. Þvílíkt og annað eins sem maður verður að taka með sem ábyrgðarfullur túristi....malaríupillur, niðurgangspillur, verkjapillur, ofnæmislyf, flugnasprey og kláðakrem, plástrar og sáraumbúðir, enginn spítali inní frumskóginum þú veist..