mánudagur, júlí 23, 2007
Í dag var stór dagur, ég var viðstödd fæðingu í fyrsta skipti. Það var alveg mögnuð lífsreynsla og hreint ólýsanlega stórkostlegt að sjá nýja mannveru líta dagsins ljós í fyrsta skipti. Þetta gerði meðal annars daginn að mjög góðum mánudegi, mánudagur en annars minn minnst uppáhalds dagur... Var þreytt eins og svo oft eftir helgi, en í þetta sinn ekki útaf sukki heldur var ég úti á landi að veiða og svona. Það tekur á, sérstaklega þegar maður er svona mikil aflakló að maður er bara stanslaust að draga upp þorskana hvern á fætur öðrum. Ekkert smá gaman á svona sjóstöng því maður veiðir svo mikið. Minn stærsti var amk 8 kíló takk fyrir. Og svo var veðrið yndislegt þar sem við vorum, á Flatey á Skjálfanda. En ég er líka með vænar harðsperrur í handleggjunum og bakinu eftir fiskeríið.
þriðjudagur, júlí 17, 2007
Þá er maður kominn heim í sólina á Íslandi. Þvílík sæla. Sólin skín frá morgni til kvölds og bærist ekki hár á haus, slík er vöntunin á vindi. Ég búin að vera tvo daga í klíník á kvennadeild Landspítalans og líst bara mjög vel á það. Þýðir reyndar að ég missi af blessaðri rjómabíðunni alla virka daga en það er sko betra en að sitja auðum höndum og sóla sig í heilan mánuð. Eina sem fæst uppúr slíku er hrukkur og krabbamein. Er að fara að hitta Sunnu mína sem ég hef ekki séð síðan í maí. Hlakka ekkert smá til að hitta hana. Og svo var Svava rúsínukleina að koma til landsins í dag þannig að ég er að fara að hitta hana á morgun, jibbí. Bónus á bónus ofan. Ef ég á að finna eitthvað til þess að kvarta yfir þá er það að Are minn er ekki hér til að deila þessu yndislega sumri með mér á klakanum.
þriðjudagur, júlí 10, 2007
haha tókst að breyta lookinu...þetta er nú samt soldið væmið...held ég verði að kíkja á þetta betur seinna. Best að drífa sig útí góða veðrið og hitta Örk niðri í bæ. Hún á soldið bágt því það var keyrt á hana á hjólinu á laugardagskvöldið og hún er með brákað rófubein og öll eitthvað kramin og krambúleruð. Ökumaðurinn stakk af um leið og hún var búin að rúlla af húddinu hans niður á götu og er að sjálfsögðu eftirlýstur af lögreglunni. Vitni lýstu honum svona: svartur maður á svörtum bíl...
já loksins kom það, sumarfríið. Og í tilefni þess datt mér í hug að blása lífi í glæður gamallar bloggsíðu sem annars hefur legið óhreifð síðan í síðasta sumarfríi. Var augljóslega mikið að flýta mér þegar hún var sett upp í fyrsta skipti eins og sést á viðbjóðslega ljótu veggfóðrinu en nú er ég svo einstaklega heft á sviði tölvu og internets að mér tekst ekki að breyta því. Já og ég fékk þá flugu í höfuðið að reyna að setja myndir inn á síðuna líka, það kemur nú í ljós hvernig það fer. Annars mun aðeins tíminn leiða í ljós hvort ég muni nenna eitthvað að skrifa og maður þarf auðvitað helst líka að hafa eitthvað að segja.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)